Nú langar mig að bjóða handverksfólk velkomið til mín sem vill selja vörur sínar. Ætlunin er að Verslunin Kompan bjóði uppá minjagripi fyrir heimamenn og gesti sem heimsækja Sauðárkrók og Skagafjörð sumarið 2010. Vörur verða teknar í umboðssölu líkt og handverkshús og upplýsingamiðstöðvar eru að gera. Þetta verður öllum opið. Hafið endilega samband við Herdísi í Kompunni síma 453 5499 eða kompan@kompan.is