Því miður verð ég að fresta fyrirhuguðu prjónanámskeiði sem vera átti núna á laugardaginn 19. sept ´09 um óákveðin tíma sökum ónógrar þátttöku. Skrítið eins og eftirspurnin hefur verið talsverð að undarförnu þá næst ekki þátttaka í þetta námskeið. En við bíðum betri tíma og reynum aftur í október. Endilega hafið samband ef þið viljið vera með í þessu byrjendanámskeiði í síma 453 5499.
Vantar þig smá hjálp við að klára stykkið sem þú byrjaðir á ........ en hefur ekki náð að klára eða jafnvel að byrja!? Hafðu samband eða komdu í Kompuna og við skulum skoða málið. Það kostar 2500 kr. (efni ekki innifalið) í hvert skipti.
Prjónanámskeið fyrir byrjendur verður haldið 19. sept. ´09 á Sauðárkróki ef næg þátttaka næst. Ef skráning verður mikil verða sett upp 6-10 manna námskeið.
Hulda Hákonardóttir kemur frá Ístex og kennir okkur listina að prjóna ásamt því að kenna okkur á lopann, lesa munsturbækur og fleira. Námskeiðið verður 3 klst. og kostar 5000 kr. á mann fyrir utan efni. Afsláttur verður gefin ef vinkonurnar mæta saman í hóp 3-4, þá lækkum við gjaldið í 4000 á mann. Staðfestingargjald þarf að greiða í síðasta lagi 11. sept. kr. 2000 (óafturkræft).
Nú er snjallt að grípa gott tækifæri og skrá sig. Endilega breiðið út boðskapinn og hvetjið alla sem þið vitið um og langar að læra að prjóna, til þessa að hafa samband í Kompuna eða í síma 453 5499 þar sem allar nánari upplýsingar eru góðfúslega veittar.
Hlakka til að heyra frá ykkur og verið velkomin.
Bómullarjavi (aida) 5 spor pr. cm. Til í rauðu, bláu og grænu. Breidd 160 cm. Selst á 750 kr. 1/2 m.
Og.
Bómullarjavi 7 spor pr. cm. Til í beinhvítum lit. Breidd 160 cm. Selst á 750 kr. 1/2 m.
Nú fæst Íslenski Lopinn í Kompunni. Léttlopi og Plötulopi.
Einnig Kambgarnið sem er til í fallegum litum og er svo frábært að nota í allskonar handavinnu ss. prjón, hekl og til að sauma út gamla Íslenska krossasauminn. Svo dæmi séu tekinn.
Nú standa yfir handavinnudagar í Kompunni.
Nýkomið mikið úrval af allskonar handavinnu, nýjar útsaumspakkningar og Bucilla vörur.
Handavinnudagarnir standa yfir í 4 vikur til 13. febrúar ´09.
Svo nú er um að gera að nota gott tækifæri þar sem úrvalið hefur sjaldan verið meira;-)
Var að taka upp glæsilega dúka til að sauma í og/eða mála, löberar og fl.
Einnig harðangur og útsaumsmyndir. Gott verð.
Vertu þá velkomin í Kompuna. Vinnustofan er komin í gang eftir áramótin ´09.
Nú erum við að byrja mála á keramikið og sauma perlusaum svo eitthvað sé nefnt. (Þetta er einmitt fínn tími til að mála og vinna við jólagjafirnar sem á að gefa næstu jól!)
Vinnustofan er í rauninni opinn þegar þér hentar! á opnunartíma verslunarinnar virka daga milli 11-18
(og lengur ef þörf krefur)
Verið velkomin.
Ýmiskonar prjónagarn er nú á afslætti í Kompunni ss. bómull, ull, skrautgarn og fl.
Kíkið við og notið nú þetta góða tækifæri í svokallaðri ''Kreppu''.
Verið velkomin.
Alla virka daga milli kl. 11-18 (og eftir samkomulagi) er opin vinnustofa í Kompunni þar sem fólki gefst kostur á að koma á námskeið í allskonar föndri. Námskeiðsgjald er mismunandi, það fer eftir því hvert námskeiðið er og hvað er innifalið. Skráning er í Kompunni eða í síma 453 5499.
Þessi hugmynd með að opna vinnustofu kemur að hluta til í staðin fyrir hefðbundið námskeiðahald.
Þeir sem hafa heimsótt Kompuna í haust og nýtt sér þetta eru allir á eitt sáttir um að þetta sé alveg frábær leið til að njóta þess að föndra í góðum félagsskap.
Til að fá hugmyndir af því sem þið gætuð hugsanlega lært í Kompunni hjá Herdísi þá er um að gera að skoða sýnishornin hérna til hliðar og sjá hvað ég hef verið að dunda mér við.
Svo nú er bara að bretta upp ermar og drífa sig af stað;-)
Verið ávallt velkomin.