Í tilefni Lummudaga sem haldnir verða nú um helgina 26. og 27. júní verður Verslunin Kompan opin frá kl. 11-17 á laugardaginn. Bjóðum við alla hjartanlega velkomna til okkar í verslunina að Aðalgötu 4 á Sauðárkróki.
Nú fæst Flamenco uni blúndugarn í Kompunni á Sauðárkróki. Mjög mjúkt og fallegt garn. 100% acrylic, 50 gr. ca 30 m. Kostar kr. 790 hnotan.
Já nú færist fjör í leikinn;-) Síðustu daga hef ég verið að rýma fyrir nýjum handverksvörum sem ég er að taka í umboðssölu frá fólki víða að. Töluvert er komið í hús en ennþá á eftir að bætast í flóruna og óhætt er að segja að margt fallegt verður í boði fyrir viðskiptavini Kompunnar sumarið 2010. Ég vil hvetja þá sem vilja vera með að hafa samband við mig hið fyrsta, síminn minn er 453 5499 í Kompunni. Svo er líka hægt að senda mér línu á kompan@kompan.is
Nýverið hef ég hlaðið inn talsverðu magni af nýjum myndum af sýnishornum sem ég hef gert og einnig myndum teknum í vinnustofunni í Kompunni af nemendum sem hafa komið og lært nýja hluti og skemmtilega.arna getið Þið getið líka fundið nokkrar myndir af námskeiðum og myndum frá prjónakaffisamverum sem hafa verið haldin á miðvikudagskvöldum í Kompunni á Sauðárkróki í vetur. Njótið vel.
4 litir á tilboði þe. grár, brúnn, blár og rauður. Kostar 550 kr. hnotan. Blandan er 65% mohair og 35% acryl. Fínt með lopanum og líka eitt og sér. Mjúkt og gott garn. Nýtið gott tækifæri. Verið velkomin í Kompuna eða hringið í síma 453 5499 og ég sendi ykkur í pósti.
Í boði eru nokkrir litir af Heilo Dalegarni á 490 kr. hnotan. Þetta eru brúnir og gráir litir. Endilega notið gott tækifæri, verið velkomin í Kompuna eða hringið í síma 453 5499.
Nú langar mig að bjóða handverksfólk velkomið til mín sem vill selja vörur sínar. Ætlunin er að Verslunin Kompan bjóði uppá minjagripi fyrir heimamenn og gesti sem heimsækja Sauðárkrók og Skagafjörð sumarið 2010. Vörur verða teknar í umboðssölu líkt og handverkshús og upplýsingamiðstöðvar eru að gera. Þetta verður öllum opið. Hafið endilega samband við Herdísi í Kompunni síma 453 5499 eða kompan@kompan.is
Nú er rétti tíminn að koma og læra að skreyta falleg kerti fyrir fermingarnar. Komið og lærið að búa til falleg vaxblóm og fleira. Sjáið sýnishorn af skreyttum kertum hér í myndasafninu til vinstri. Vinnustofan er opin alla virka daga milli kl. 13-18 og eftir samkomulagi. Verið velkomin.
Mikið úrval af allskonar föndurvörum á 30-50% afslætti. Kíkið í Kompuna á Sauðárkróki og notið tækifærið.
Öll handavinna þe. útsaumspakkningar eru á 30% afslætti í Kompunni Sauðárkróki. Komið eða hringið og gerið góð kaup! Verið velkomin.